|
PM ParketMeistarinn ehf. er eitt vandaðasta fyrirtækið á sínu sviði.! Þetta er ekki fullyrðing út í loftið því við sjáum sóma okkar í að nota eingöngu hágæða efni og fyrsta flokks tækjakost hvort sem er í parketlögn, slípun eða yfirborðmeðhöndlun. Við leggjum okkur fram við að vel sé að verkum staðið og að snyrti og fagmennska sé í hávegum höfð. Við búum að sérþekkingu og reynslu síðastliðinna 23 ára. Metnaður PM ehf. er að hafa gæðin að leiðarljósi, það geta viðskiptavinir okkar borið vitni um.
Það getur borgað sig að fá fagmanninn til skrafs og ráðagerða áður hafist er handa við parketvinnu því það eru ótal mörg atriði sem þarf að huga að ef vanda skal til verksins.
 · Ráðgjöf. · Parketslípun og lökkun. · Parketslípun og olíuburður. · Viðhaldsvinna · Vélaleiga. · Við seljum hágæða lökk og olíur. · Við seljum hágæða parketlím. · Við stöndum við það sem við lofum.
PM ehf. er meðlimur í FÍP félags íslenskra parketmanna og einnig NWFA National Wood Flooring Association sem eru ein stærstu parketsamtök í heiminum.
|